KFC appið er pöntunarlausn sem KFC býður í formi apps (snjallforrits) á Google Play og í Apple App Store.
Frekari leiðbeiningar um notkun og virkni KFC appið eru aðgengilegar á hér
Notandi gerir pantanir í KFC appinu og greiðir þær í gegnum sérstaka „greiðslustöð“: AppBorgarann sem er staðsett á öllum KFC stöðum. Notandi fær greiðslu staðfestingu í SMS skilaboðum og greiðslukvittun prentast þegar pöntun er greidd
Með því að skrá sig sem notanda í KFC appið og staðfesta að viðkomandi hafi kynnt sér, skilið og samþykkt neðangreinda skilmála hefur viðkomandi undirgengist skilmála KFC hf., kt. 540198-3149, Garðahrauni 2, 210 Garðabæ, (hér eftir „KFC“), eins og þeir eru á hverjum tíma, og fela þeir í sér heildarsamning milli KFC og notanda um notkun KFC appsins (einnig vísað til sem „samningsins“).
Í skilmálum þessum er einnig vísað til lausnarinnar KFC appið sem „lausnarinnar“, „KFC appið“ og/eða „appsins“.
Notandi skal kynna sér vandlega skilmála þessa áður en stofnaður er aðgangur í KFC Appið og er samþykki skilmálanna forsenda þess að notandi megi og geti notað lausnina. Notandi er hvattur til að vista afrit af þeim skilmálum sem hann samþykkir áður en hann byrjar að nota KFC appið.
Skilmálar KFC Appsins, eins og þeir eru hverju sinni, eru birtir hér og einnig aðgengilegir í gegnum KFC appið. Leiðbeiningar um notkunarmöguleika lausnarinnar eru að finna hér, m.a. um hvernig notandi getur nálgast uppáhalds vörur, uppáhalds pantanir eða pantanasögu sína.
Skilmálar þessir hafa ekki áhrif á þau gjöld og/eða kostnað sem notandi kann að þurfa greiða fjarskiptafélagi sínu, viðskiptabanka, kortaútgefanda sínum eða öðrum þriðju aðilum í tengslum við þjónustu umræddra aðila sem lausnin byggir á.
1.1. Skilyrði fyrir notkun KFC appsins
KFC appið er opið fyrirtækjum og einstaklingum á hvaða aldri sem er.
Til þess að notandi geti notað lausnina KFC appið þarf hann að hafa:
– snjalltæki (snjallsíma eða lófatölvu) þar sem hann hefur hlaðið niður KFC appið úr App Store, eða Google Play,
– farsímanúmer
Við stofnun aðgangs í appinu þarf notandi að skrá framangreindar upplýsingar í nýskráningarferli KFC appið.
Notandi ábyrgist að upplýsingar sem skráðar eru í appið séu alltaf réttar og varði hann sjálfan. Það er því alfarið á ábyrgð notanda að uppfæra upplýsingar um sig í appinu þegar og ef þörf krefur.
KFC áskilur sér rétt til að meina aðilum skráningu sem notanda í KFC appið ef KFC telur slíka skráningu ekki þjóna viðskiptalegum hagsmunum KFC.
1.2. Aðgangur notanda
Aðgangur notanda að KFC appinu skal aðeins vera notaður af honum sjálfum og er notanda óheimilt að deila aðgangsupplýsingum með þriðja aðila eða á annan hátt veita þriðja aðila aðgang að persónulegum aðgangi sínum að KFC appinu. Notandi skal tryggja leynd aðgangsupplýsinga sinna og ber ábyrgð á hvers kyns tjóni sem kann að hljótast af því að aðgangsupplýsingar rati til þriðja aðila, hvort sem það er með vitneskju notanda eður ei.
Notandi sem auðkennir sig með réttu lykilorði, sbr. gr. 1.3., er álitinn réttur eigandi viðkomandi notendaaðgangs að KFC appinu og hefur einungis sá aðili heimild til að framkvæma aðgerðir á þeim notendaaðgangi í KFC appinu. Notandi ber ávallt fulla ábyrgð á öllum aðgerðum sem staðfestar hafa verið með framangreindum hætti í KFC appinu.
1.3. Nýskráning
Við nýskráningu ber notanda að auðkenna sig, með símanúmer og staðfestingarkóða sem berst í SMS sem notandi fær sendan í símtæki sitt.
Notendum er valkvæmt að skrá sig í vildarklúbb KFC, KFC klúbbinn, við nýskráningu. Nánar um vildarklúbb KFC.
1.4. Persónuvernd
Við skráningu í lausnina og notkun hennar verða til upplýsingar sem KFC safnar og tengjast notanda, þ. á m. kaup og greiðslusaga notanda, sem og upplýsingar sem notandi skráir í lausnina, sbr. gr. 1.1. og 1.3. Þessar upplýsingar teljast til persónugreinanlegra upplýsinga í skilningi laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga („persónuverndarlög“). Áréttað er að greiðslukortaupplýsingar eru aldrei aðgengilegar KFC appinu.
Í Persónuverndarstefnu KFC, hér fyrir neðan, þar sem er að finna nánari upplýsingar um hvernig unnið er með þær upplýsingar sem safnast við skráningu í lausnina og notkun hennar. Persónuverndarstefna þessi skal teljast hluti af samningi þessum og skal notandi því kynna sér hana vel áður en hann hefur notkun á lausninni.
Nánari upplýsingar um þær öryggisráðstafanir sem KFC notar til að vernda persónuupplýsingar notenda KFC appið eru að finna í gr. 6.
2. Notkun lausnarinnar
2.1. Notkunarmöguleikar
Með KFC appinu getur notandi gert pantanir fyrir vöru og/eða þjónustu á sölustað sem býður upp á greiðslur með KFC appinu í gegnum AppBorgarann.
Þegar notandi velur að greiða með AppBorgaranum er leitað eftir úttektarheimild fyrir upphæðinni hjá kortaútgefanda viðkomandi korts sem notandi hefur valið. Á framangreint við um kreditkort. Kortaútgefandi metur hvort umbeðin úttekt sé heimiluð af greiðslukortinu. Hafni kortaútgefandi umbeðinni úttekt af greiðslukortinu er færslunni hafnað í AppBorgaranum.
Þegar notandi hefur auðkennt og samþykkt greiðslu með KFC appið getur hann ekki afturkallað greiðsluna.
Upplýsingar um pantanasögu í KFC appinu eru aðgengilegar notanda í appinu meðan hann er virkan notendaaðgang.
2.2. Óheimil notkun
Notanda er með öllu óheimilt að nota KFC appið:
– til að áreita aðra notendur KFC appið eða þriðju aðila;
– til að ná í fjármuni af öðru greiðslukorti en sínu eigin, eða fyrirtækjakorti sem notandi hefur fengið rétt til að nota, eða til að ná í fjármuni eða færa fjármuni með óheiðarlegum eða saknæmum hætti (eða aðstoða aðra við að gera slíkt);
– til að framkvæma aðgerðir sem brjóta gegn skilmálum þessum, lögum og/eða stjórnsýslufyrirmælum;
– til að eiga frumkvæði að, eða hafa milligöngu um, óumbeðin samskipti við einn eða fleiri notendur KFC appið (s.k. „spam“);
– til að falsa, brjóta, breyta, skemma, trufla eða á nokkurn annan hátt, að hafa áhrif á öryggi og öryggisþætti lausnarinnar í þeim tilgangi að skoða eða misnota upplýsingar sem eru notanda óviðkomandi. Verði notandi var við veikleika í öryggisþáttum ber honum að tilkynna KFC um það án tafar; og/eða
– til að brjóta gegn höfunda- eða hugverkarétti KFC;
Verði KFC var við ofangreinda notkun á lausninni áskilur KFC sér rétt til að læsa fyrirvaralaust aðgangi viðkomandi notanda að KFC appið og rifta um leið samningi þessum, sbr. gr. 4. í skilmálum þessum.
4.1. Lokun af hálfu notanda
Notandi getur lokað aðgangi sínum að KFC appinu hvenær sem er, með því að eyða appinu af snjalltækinu. Með því að eyða aðgangi í appinu er notandi um leið að segja upp samningi þessum. Uppsögn notanda tekur gildi strax.
Hafi snjalltæki notanda týnst eða verið stolið getur notandi tilkynnt KFC um uppsögn með skriflegum hætti https://forms.kfc.is/app/support/ .
Hafi notandi sagt upp fjarskiptaþjónustu hjá sínu fjarskiptafyrirtæki eða skipt um fjarskiptafyrirtæki hefur það ekki í för með sér uppsögn á KFC appinu.
Ef notandi eyðir KFC appinu og segir þar með upp samningi þessum mun hann ekki lengur geta nýtt sér lausnina KFC appið.
4.2. Lokun af hálfu KFC
KFC getur sagt upp samningi þessum við notanda hvenær sem er án fyrirvara. Skal slík uppsögn berast notanda skriflega, svo sem með tölvupósti . KFC þarf ekki að tilgreina ástæðu uppsagnar, en einkum gæti uppsögn átt sér stað ef notandi brýtur gegn skilmálum KFC appið eða öðrum viðeigandi skilmálum KFC, stofnar öryggi KFC Appsins í hættu eða fylgir ekki fyrirmælum KFC.
Að uppsagnarfresti liðnum lokast sjálfkrafa aðgangur notanda að KFC appið.
4.3. Riftun samnings
KFC áskilur sér rétt til að rifta samningnum án fyrirvara og þar með eyða aðgangi notanda fyrirvaralaust, ef eitthvert neðangreindra skilyrða á við:
– notandi fer ekki eftir skilmálum þessum, lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum við notkun á KFC Appsins,
– notandi fer ekki að fyrirmælum KFC við notkun KFC Appsins,
– notandi hefur í frammi ógnandi hegðun gagnvart starfsfólki KFC eða öðrum notendum KFC Appsins,
– ef KFC er það skylt skv. fyrirmælum frá stjórnvöldum eða dómstólum.
4.4. Áhrif uppsagnar/riftunar
Um varðveislu upplýsinga um notanda og greiðslusögu hans er skv. Persónuverndarstefnu KFC. Ópersónugreinanleg gögn um notkun notanda á lausninni varðveitast áfram ótímabundið.
Hafi KFC rift samningi við notanda vegna athæfis sem varðar við lög eða stjórnvaldsfyrirmæli áskilur KFC sér rétt til að leita réttar síns eða kæra viðkomandi til lögreglu. Slíkur réttur skal einnig vera til staðar vakni grunur um saknæma háttsemi jafnvel þó svo að KFC ákveði að rifta ekki samningi við notanda.
5.1. Ábyrgð notanda
Öll notkun KFC appinu er á ábyrgð notanda.
Notandi ber ábyrgð á aðgangsupplýsingum sínum að KFC appið og öryggi þeirra, sbr. gr. 6. Ber honum að koma í veg fyrir að óviðkomandi aðili komist yfir snjalltæki hans (sem tengt er KFC appið) og aðgangsupplýsingar hans.
Hafi snjalltæki notanda týnst eða verið stolið ber notandi ábyrgð á því að biðja KFC um að læsa aðgangi sínum, sbr. gr. 4.
Notandi ber ábyrgð á því að næg heimild/innistæða sé á greiðslukorti þegar hann framkvæmir greiðslu með KFC appinu í gegnum AppBorgarann.
Notandi viðurkennir og samþykkir með skilmálum þessum að allar greiðslur eru óafturkræfar ef auðkenni notanda hefur verið notað til staðfestingar í KFC appinu.
Notandi ber ábyrgð á að fylgjast með greiðslukortanotkun sinni. Telji notandi að greiðsla hafi átt sér stað án hans heimildar og/eða án auðkenningar í AppBorgaranum við notkun á KFC appinu ber honum að tilkynna KFC slíkt án tafar. Það sama á við verði notandi var við aðrar óeðlilegar hreyfingar á aðgangi sínum. Tilkynningu skal senda KFC með https://forms.kfc.is/app/support/ .
5.2. Ábyrgð KFC
Komi í ljós galli í lausninni, sem veruleg áhrif hefur á virkni lausnarinnar, ber KFC að lagfæra hann sé slíkt mögulegt.
Verði notandi fyrir tjóni í tengslum við notkun lausnarinnar ber KFC enga ábyrgð á slíku tjóni megi rekja það til vanrækslu notanda eða brota hans á skilmálum þessum. Það sama á við hafi notandi notað lausnina með saknæmum eða ólögmætum hætti eða hafi notandi veitt þriðja aðila aðgang að KFC appinu.
KFC ber ekki ábyrgð á að vinnsla í lausninni stöðvist tímabundið eða atriðum sem notandi lausnarinnar ber sjálfur ábyrgð á samkvæmt skilmálum þessum. Það sama á við um ábyrgð á tjóni sem rekja má til sambandsleysis eða rofa á fjarskiptum.
KFC ber í engu tilviki ábyrgð á öðru en beinu tjóni notanda. Þannig ber KFC ekki ábyrgð á rekstrartapi notanda og/eða þriðja aðila, né heldur afleiddu tjóni slíkra aðila, þ.m.t. glötuðum ágóða eða ráðgerðum sparnaði, hvort sem tjónið er rakið til galla, skemmda eða eyðileggingar á lausninni eða til annarra ástæðna, jafnvel þó að KFC hafi verið tilkynnt um möguleikann á slíku tjóni.
Í öllum tilvikum skal ábyrgð KFC, þ.á m. vegna hvers konar mistaka, villna, vanrækslu (svo sem í tengslum við öryggisráðstafanir), truflana, tafa, tjóns eða galla á lausninni, takmarkast við kr. 10.000, að því marki sem heimilt er á grundvelli ófrávíkjanlegra laga.
Ef KFC getur ekki uppfyllt skyldur sínar vegna neyðarréttarlegra eða óviðráðanlegra atvika (force majeure) falla skuldbindingar hans, þ.m.t. möguleg bótaábyrgð, niður á meðan slíkt ástand varir.
6.1. Öryggisráðstafanir á ábyrgð notanda
Notandi ber ábyrgð á að gæta öryggis aðgangsupplýsinga sinna að KFC appinu. Notandi skal eftir fremsta megni reyna koma í veg fyrir misnotkun á aðgangi hans að KFC appinu, t.d. með því að veita aldrei þriðja aðila aðgang að snjalltæki sínu þar sem KFC appið er aðgengilegt eða með því að læsa snjalltæki með kóða eða takkalæsingu. Notandi á ekki að upplýsa aðra um slíka aðgangskóða.
Gruni notanda að aðgangsupplýsingum hans, t.d. PIN-númeri, hafi verið stolið eða þær notaðar í leyfisleysi af þriðja aðila, ber notanda að breyta PIN-númeri sínu án tafar og hafa samband við KFC.
Ef símtækið, sem notandi hefur til umráða til að nýta KFC appið, tapast eða er stolið ber notanda að læsa aðgangi sínum með því að tilkynna atvikið til KFC um leið, sbr. gr. 4.
Greiðsla, sem framkvæmd hefur verið með KFC appinu í gegnum AppBorgarann og sem hefur verið auðkennd með réttum upplýsingum frá notanda, telst gild og samþykkt af notanda. Ef annar aðili hefur aðgang að þessum upplýsingum og tekst að komast í gegnum auðkennis- og öryggisathugun að aðgangi notanda, áskilur KFC sér rétt til að líta svo á að greiðslur sem kunna að vera framkvæmdar með KFC appið í gegnum AppBorgarann séu samþykktar af notanda og ábyrgist félagið ekki tjón sem af þeim hlýst.
6.2. Öryggisráðstafanir KFC
Telji KFC að gögn og upplýsingar bendi til þess að greiðsla, sem notandi hefur tilkynnt sem ranga, hafi í raun verið samþykkt og staðfest af notanda eða með réttum öryggisupplýsingum notanda, áskilur KFC sér rétt til að bakfæra leiðréttingu sem kann að hafa farið fram á grundvelli tilkynningar notanda um meinta óheimila greiðslu. Einnig kann aðgangi notanda að KFC appinu að verða læst tímabundið, ef KFC telur ástæðu til, svo sem ef KFC telur vafa leika á auðkenningu notanda. Hið sama á við um notkunarmöguleika notanda í appinu.
KFC gætir öryggis KFC appið með m.a. eftirfarandi ráðstöfunum:
– ekki eru vistaðar eða aðgengilegar greiðslukortaupplýsingar notanda hjá KFC,
– öll samskipti í KFC appið eru dulkóðuð,
– allar upplýsingar um notendur KFC appsins og notkun þeirra í appinu eru varðveittar í öruggu hýsingarumhverfi hjá KFC á Íslandi, og
– upplýsingar um notanda verða ekki afhentar eða unnar af þriðja aðila nema skv. skýrri lagaheimild, ákvörðun stjórnvalda eða dómstóla, á grundvelli undirritaðs vinnslusamnings eða með samþykki notanda, sbr. einnig Persónuverndarstefnu KFC.
Lausnin er veitt notendum KFC appsins að kostnaðarlausu og er ekkert skráningargjald, mánaðar- eða árgjald gjaldfært vegna notkunar á KFC Appsins.
Notandi ber eftir sem áður ábyrgð á greiðslu gjalda vegna fjarskiptaþjónustu sem hann kaupir frá sínu fjarskiptafélagi vegna notkunar á snjalltæki sínu, t.d. notkun á gagnamagni. Hið sama á við um gjöld sem viðskiptabanki, kortaútgefandi eða færsluhirðir notanda kann að gjaldfæra notanda um vegna þjónustu sem þessir aðilar veita honum, t.d. vegna notkunar á greiðslukorti notanda sem notað er til að greiða pantanir sem gerðar eru í KFC appinu.
Samningur þessi hefur ekki í för með sér neins konar yfirfærslu á höfunda- eða hugverkarétti frá KFC.
Allt innihald Appsins og vefsvæðis er í eigu KFC, þar með talið vörumerkið KFC appið, texti, hönnun, grafík, ljósmyndir, myndir og ritstýrt efni er varið höfundarétti.
Notanda er einungis heimilt að nýta sér upplýsingar eða efni af vefsíðu KFC eða KFC appinu til persónulegra nota í samræmi við skilmála þessa.
Dreifing, fjölföldun eða endurútgáfa af höfundavörðu efni KFC er með öllu óheimil.
9.1. Tæknilegar breytingar eða uppfærslur
KFC áskilur sér rétt til að gera tæknilegar breytingar eða uppfærslur á KFC appinu þegar þörf krefur, þ.á m. til að bæta lausnina. Mun KFC tilkynna notendum um slíkar breytingar í þeim tilvikum sem þær gætu haft áhrif á notkun á KFC appsins eftir því sem unnt er. Munu tilkynningar birtast á vefsíðu KFC https://www.forms.kfc.is\App\WhatsNew .
9.2. Breytingar á skilmálum KFCAppið
KFC áskilur sér rétt til að uppfæra skilmála þessa. Nýjasta útgáfa skilmála þessa er aðgengileg á vefsíðu KFC https://forms.kfc.is/app/terms/ og í gegnum KFC appið.
Breytingar á skilmálum KFC appsins verða kynntar notendum með skriflegum hætti, svo sem með skilaboðum í gegnum appið. Með notkun KFC appsins samþykkir notandi breytta skilmála KFC appsins. Að öðrum kosti er notanda skylt að eyða KFC appinu af snjalltækjum sínum.
Óski notandi þess að koma á framfæri ábendingu eða kvörtun vegna KFC appsins er unnt að senda erindi í gegnum https://forms.kfc.is/app/support/.
10.1. Ágreiningur milli notanda og söluaðila/færsluhirðis/kortaútgefanda
KFC ber ekki ábyrgð á ágreiningi milli notanda og þess færsluhirðis sem þjónustar viðkomandi söluaðila, sbr. einnig gr. 5.2.
Jafnframt ber KFC ekki ábyrgð á virkni, útgáfu eða greiðsluheimild þess greiðslukorts sem notandi KFC appið notar í gegnum í lausnina. Ágreining um slík atriði þarf að bera undir kortaútgefanda greiðslukortsins.
KFC áskilur sér rétt til að hætta að bjóða lausnina KFC appið hvenær sem er án sérstakra skýringa. Komi til þess verður notendum tilkynnt um það með hæfilegum fyrirvara.
Um skilmála þessa og lausnina KFC appið gilda íslensk lög.
Rísi ágreiningur milli notanda og KFC vegna lausnarinnar KFC appið, sem ekki reynist unnt að leysa með farsælum hætti milli aðila, skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
KFC er heimilt að framselja, að hluta eða öllu leyti, réttindi sín og skyldur samkvæmt samningi þessum með tilkynningu til notanda en notanda er það óheimilt án samþykkis KFC. Þá er KFC heimilt að útvista verkefnum í tengslum við samning þennan, að hluta eða öllu leyti, til þriðja aðila, í samræmi við heimildir laga.
KFC áskilur sér rétt til að senda notanda skilaboð sem tengjast notkun eða virkni KFC appsins, svo sem með því að senda tölvupóst, SMS eða skilaboð í gegnum appið.
Samþykki notandi skilmálana áskilur KFC sér einnig rétt til að hafa samband við notanda í markaðslegum tilgangi, svo sem til að senda skilaboð um aðrar þjónustur og/eða vörur KFC. Notandi getur afturkallað slíkt samþykki hvenær sem er með því að senda skilaboð þess efnis í gegnum https://forms.kfc.is/app/support/
Skilmálar þessir eru gefnir út af KFC ehf. og gilda frá 1. september 2018 og til þess tíma er nýir skilmálar taka gildi.
KFC appið er greiðslulausn sem KFC býður í formi Apps (snjallforrits) á Google Play og í Apple App Store.
Frekari leiðbeiningar um notkun og virkni KFC Appsins eru aðgengilegar hér.
Vinnsla KFC
Við stofnun aðgangs í smáforriti KFC appinu („appið“) og við notkun lausnarinnar er unnið með persónugreinanlegar upplýsingar notanda eins og nánar er kveðið á um í stefnu þessari.
Öll vinnsla á persónuupplýsingum, þ.m.t. öflun, skráning, vistun og meðferð þeirra á vegum KFC, lýtur lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og öðrum reglum sem settar hafa verið á grundvelli persónuverndarlaga („persónuverndarlög“).
KFC gætir þess að þeir þættir vinnslunnar sem KFC hefur með höndum, sem ábyrgðaraðili vinnslu, í tengslum við notkun lausnarinnar séu í samræmi við slíka löggjöf.
Persónuupplýsingar sem safnað er
Við stofnun aðgangs í appinu þarf notandi að lágmarki að skrá upplýsingar um símanúmer sitt. Notandi ber ábyrgð á réttleika þeirra upplýsinga sem hann skráir í KFC appið hverju sinni.
Við notkun lausnarinnar eru allar aðgerðir sem tengjast skráningu notanda, pöntunum og greiðslum í KFC appinu skráðar og vistaðar hjá KFC í þeim tilgangi að geta stofnað aðgang fyrir notanda, til að geta veitt honum lausnina á grundvelli samnings milli notanda og KFC, til að geta sannreynt og staðfest þær aðgerðir sem notandi nýtir sér með KFC appið, til að halda utan um greiðslusögu notanda og til að tryggja öryggi, þ.m.t. rekstrarlegt öryggi, lausnarinnar.
Við framkvæmd greiðslu með lausninni í gegnum AppBorgarann eru upplýsingar um vörukaup ásamt dagsetningu, tímasetningu og upphæð greiðslu vistaðar í afgreiðslukerfum KFC.
Við notkun á appinu safnast og vistast sjálfkrafa hjá KFC eftirfarandi upplýsingar um símtæki notanda í þeim tilgangi að afla vitneskju um notkun á lausninni svo KFC geti aðlagað lausnina betur að þörfum notanda hennar, ásamt því að hafa til staðar rekjanleika aðgerða sem notandi grípur til með notkun á lausninni:
– tegund og útgáfa stýrikerfis
– IP-tölu notanda
– einkvæmt auðkenni notanda (símanúmer)
Hjá notendum sem skrá sig í vildarklúbb KFC, KFC klúbbinn, vistast að auki eftirfarandi upplýsingar:
– Tölvupóstfang
– Símanúmer (=vildarkortsnúmer)
– Viðskiptafærsla vörukaupa
– Vildarpunktar – ef vildarkerfi er virkt.
Nánari upplýsingar um upplýsingasöfnun Appsins eru aðgengilegar á https://forms.kfc.is/app/terms/ .
Með sérstöku samþykki frá notanda kann KFC jafnframt að vera heimilt að greina upplýsingar um notkun notanda á lausninni með nánari hætti svo sem til að veita notanda einstaklingsmiðaða þjónustu og/eða tilboð á grundvelli notkunar á lausninni.
Tilgangur vinnslu
KFC aflar, skráir og vistar upplýsingarnar í þeim tilgangi að stofna aðgang fyrir notanda, til að gera notanda kleift að nýta hugbúnaðarlausnina á grundvelli skilmála KFC Appsins, til að geta haldið utan um notkunarsögu notanda á lausninni, til að tryggja öryggi hennar og veita réttum notanda upplýsingar um rétta notkun, t.d. til að sannreyna hvort tiltekin greiðsla hafi átt sér stað á vegum notanda. Þá eru upplýsingarnar notaðar til að tryggja gæði og virkni lausnarinnar og ef þörf krefur vegna stoðþjónustu og bilanagreiningu.
Þá mun KFC nota upplýsingarnar til að geta sett sig í samband við notanda í viðskiptalegum tilgangi, þ.á m. í þeim tilgangi að tilkynna notanda um breytingar á lausninni, svo sem á virkni hennar eða stillingum.
KFC mun ekki nota upplýsingarnar í öðrum tilgangi án þess að afla sérstaklega samþykkis notanda fyrir slíkri vinnslu, svo sem til að hafa samband við notanda í markaðslegum tilgangi.
Viðtakendur upplýsinga
Þær upplýsingar sem safnast við notkun lausnarinnar eru vistaðar hjá eða á vegum KFC á Íslandi.
Vinnsla KFC á upplýsingunum felst í því að tryggja virkni lausnarinnar, öryggi upplýsinganna, hýsa upplýsingarnar, tengja lausn og upplýsingar sem safnast úr snjallsímum við greiðslukvittanir frá söluaðilum og eftir atvikum þriðju aðilum (t.d. færsluhirðum) og sjá um að eyða upplýsingum á grundvelli fyrirmæla KFC þar um. Þá kann KFC eftir atvikum að þurfa veita notendum stoðþjónustu eða bilanagreiningu, sé um það samið, og í slíkum tilvikum kann KFC að leita aðstoðar frá þriðja aðila.
Hvorki KFC né þriðji aðili munu nota upplýsingarnar í öðrum tilgangi eða afhenda þær öðrum aðilum, að lögreglu frátalinni, nema á grundvelli lagaheimildar, stjórnvaldsfyrirmæla, dómsúrskurðar eða samþykkis notanda. KFC áskilur sér þó rétt til að afhenda þriðja aðila ópersónugreinanlegar upplýsingar um notkun lausnarinnar, sbr. gr. 9 neðar.
Varðveislutími
Allar upplýsingar eru vistaðar á meðan notandi telst enn vera notandi KFC Appsins.
Notandi getur óskað eftir eyðingu upplýsinga fyrir með skriflegri beiðni til KFC á https://forms.kfc.is/app/support/ .
Nákvæmni og áreiðanleiki upplýsinga
KFC mun gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að persónuupplýsingar sem félagið safnar við notkun notanda á lausninni séu áreiðanlegar og uppfærðar þegar þörf krefur. Séu persónuupplýsingar óáreiðanlegar mun KFC, með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar, gera viðeigandi ráðstafanir til þess að þær verði leiðréttar eða þeim eytt.
Öryggi upplýsinga
KFC mun gera viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi persónuupplýsinga, m.a. með það að markmiði að koma í veg fyrir mannleg mistök, þjófnað, svik eða aðra misnotkun á upplýsingum, sbr. einnig gr. 6. í skilmálum KFC Appsins. KFC mun takmarka aðgang að upplýsingum við þá starfsmenn sem nauðsynlega þurfa slíkan aðgang til að ná fram tilgangi vinnslunnar. Starfsmenn KFC eru upplýstir um skyldu þeirra til að viðhalda trúnaði og öryggi persónuupplýsinga.
Réttindi notanda
Notandi hefur rétt til andmæla söfnun KFC á persónuupplýsingum telji hann að slík söfnun sé ekki í samræmi við tilgang hennar, að meðalhófs sé ekki gætt eða ef hann telur að sama árangri sé hægt að ná með mildari aðferðum. Þá getur notandi óskað eftir því að fá upplýsingar um þá vinnslu sem á sér stað hjá KFC um hann, enda standi hagsmunir annarra því ekki í vegi. Sé aðgangur að slíkum upplýsingum veittur skal hann veittur eins fljótt og auðið er og eigi síðar en innan eins mánaðar frá móttöku slíkrar beiðni.
Notandi kann jafnframt að eiga rétt til að krefjast þess að röngum, villandi eða ófullkomnum persónuupplýsingum um sig verði leiðréttar og/eða þeim eytt.
Ópersónugreinanlegar upplýsingar
KFC áskilur sér rétt til að vinna með og greina ópersónugreinanlegar upplýsingar um notkun notanda á lausninni og pantanir, til áframhaldandi vöruþróunar og/eða til að bæta virkni lausnarinnar. Skal KFC vera heimilt að miðla slíkum ópersónugreinalegum upplýsingum um lausnina, t.d. tölfræðilegar samantektir.
Kvartanir og beiðnir
Kvörtunum eða beiðnum frá notendum KFC appið vegna vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við hugbúnaðarlausnina skal koma á framfæri við KFC með skriflegum hætti á https://forms.kfc.is/app/support/ . KFC skal bregðast við erindi notanda eins fljótt og auðið er með skriflegum hætti.
Tilkynning til Persónuverndar
Vinnsla persónuupplýsinga með hugbúnaðarlausninni KFC appið á vegum KFC hefur verið tilkynnt til Persónuverndar í samræmi við ákvæði reglna nr. 712/2008 um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga.